Gestir
DVD diskur

DVD diskur

DVD diskurinn „Þjóðveldisbærinn í Þjórsárdal“ hefur að geyma tvær myndir. Annars vegar heimildarmynd um byggingu bæjarins og hins vegar mynd um lifnaðarhætti til forna í bæjum sem þessum.

DVD diskur um þjóðveldisbæinnÞjóðveldisbærinn í Þjórsárdal
Í þessari mynd leiðir Margrét Vilhjálmsdóttir, leikkona, okkur um þjóðveldisbæinn, gefur innsýn í daglegt líf fólks til forna og segir sögur af atburðum sem gerðust í slíkum híbýlum.

Handritið er eftir Davíð Þór Jónsson og stjórnandi er Björn B. Björnsson.

Hér stóð bær
Kvikmyndin fjallar um gerð og byggingu þjóðveldisbæjarins sem reistur var í tilefni 1100 ára afmælis Íslandsbyggðar árið 1974. Í myndinni er fylgst með byggingu bæjarins frá upphafi til vígsludags.

Handrit skrifaði Hörður Ágústsson, tónlistin er eftir Jón Leifs og stjórnandi myndarinnar var Páll Steingrímsson.

Senda

Samstarfsaðilar

  • Stjórnarráðið
  • Skeiða- og Gnúpverjahreppur
  • Þjóðminjasafnið
  • Landsvirkjun



Stoðflokkar


Útlit síðu:

Tungumál


Þetta vefsvæði byggir á Eplica